Leita í fréttum mbl.is

Veikindi :o(

Að vera heima veikur er ekki það skemmtilegasta sem ég geri.  Ég fékk sýkingu í brjóstið því ég er enn með yngri stelpuna sem er 1 árs á brjósti, og fékk þennan skemmtilega hita og skjálfta með tilheyrandi kuldaköstum, og ofan í þetta allt saman fékk ég ælupest! Takk fyrir pent! Þannig að ég hef ekki verið viðræðuhæf og varla haldið haus undanfarinn sólarhring. Ekki skemmtilegt það. En ég er öll að koma til og stefni á að fara í vinnu og á kóræfingu á morgun :o)

Talandi um brjóstagjöf.  Hvað á maður að gera ef börn vilja bara alls ekki hætta á brjósti??? Eins og mín yngri, hún bara verður óð ef hún fær ekki brjóstið sitt á kvöldin þegar hún er að fara að sofa og 3x á nóttunni og hún er rúmlega 1 árs.  Þetta var ekkert mál hjá þessari eldri þetta bara fjaraði út og hún hætti bara einn daginn þegar hún var 9 mánaða og ekkert mál! 

Yngri stelpan mín tók fyrstu skrefin sín í fyrradag.  Og í gær var hún á fullu að labba á milli mín og ömmu sinnar. :o)

Eldri stelpan er að fara að byrja í Tónlistarskóla.  Hún er að fara í forskóla og byrjar á fimmtudaginn.  Sú er ekkert smá spennt :o)

Kallinn á leið suður á fund.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæhæ  frænk. bara byrjuð að blogga aftur, æði! Get samt ekki ráðlagt þér með vandamálið þitt, sorry. En hvenær fæ ég að hitta frænkurnar mínar næst? Langt síðan ég hef hitt ykkur!!!!!

Aldís (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 23:02

2 Smámynd: Steingrímur Rúnar Guðmundsson

Koma bara vestur stelpa!

Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 5.9.2007 kl. 12:44

3 identicon

Hæ hæ skvís .....gaman að ég skyldi finna bloggið þitt  Og til hamingju með íbúðina og fluttning . já það getur verið erfitt að bíða með allt mála og hitt þáu veist ++++ . þú  hefðir átt að sjá íbúðina sem ég keypti hér í Hafnarfirði , hún var bara ógeðsleg , ekkert þrifin  svo það seinkaði allri málningu en við erum loksins byrjuð .

Brjósta barn það getur sko oft verið erfitt , stundum þarf maður bara að nota hörku og vera ákveðin , tekur smá tíma ,öööööööööö

En gangi ykkur sem best , kveðja frá kiddý,frissa og tínu:)

Kiddý (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sæunn Sigr, Sigurjóns
Sæunn Sigr, Sigurjóns

Tveggja barna móðir, sambýliskona, leikskólakennarafjarnáms skólastelpa og Vestfirsk Valkyrja ... með meiru :o)

Nýjustu færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband